29.8.2009 | 15:05
Frábært framtak
Ég sat og horfði á "Á allra vörum" í gærkveldi og ekki var laust við að tár komu er ég hlustaði á sögur þeirra sem átt hafa eða eiga krabbameinsveik börn. Þetta eru hetjur í minum augum og ég dáist að þeim krafti sem þetta fólk ber með sér í gegnum svona lífsreynslu.
Ég vildi óska að ég ætti fullt af milljónum til að gefa í svona söfnun en lét nokkra þúsundkalla nægja.
Ég skora á alla sem hafa ekki ennþá gefið að gefa þó ekki væri nema eitt þúsund krónur !
Margt smátt gerir eitt stórt --
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.